SKYRKAKA
-Uppskrift-
- 1 pakki kanilkex frá lu mulið
- 80 g brætt smjör
- 5 dl rjómi þeyttur
- 500 g vanilluskyr
- 3 msk bláberjasulta
- 200 g jarðaber
Aðferð
1. Blandið kexmylsnunni og smjörinu saman og þrýstið á botninn á vel smurðu smelluformi.
2. Hrærið rjómann varlega saman við vanilluskyrið og hellið ofan á kexbotninn
3. Setjið bláberjasultuna gætilega ofaná, ásamt jarðaberjum sem hafa verið skorin í bita.
4. Látið standa í kæli í 3-4 klst áður en hún er borin fram.
No comments:
Post a Comment